16 Desember 2020 19:41

Talsverð úrkoma er nú á Seyðisfirði og gert ráð fyrir að það ástand vari í nótt. Því er ekki talið óhætt að fara inn á rýmingarsvæðið í bítið líkt og heimilað var í morgun. Staðan verður endurmetin klukkan hálf ellefu í fyrramálið. Næstu tilkynningar er því að vænta um klukkan hálf tólf á morgun. Frekari upplýsingar má finna hjá vettvangsstjórn aðgerða í húsi björgunarsveitarinnar Ísólfs frá klukkan átta í fyrramálið.

Aðgerðastjórn vekur athygli á að í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Herðubreið á Seyðisfirði er áfallahjálp í boði. Íbúar sem telja sig hafa þörf fyrir aðstoð eru hvattir til að nýta sér þennan kost.