17 Desember 2020 10:10

Í ljósi atburða á Seyðisfirði beinir aðgerðastjórn tilmælum til þeirra sem þangað þurfa starfs sín vegna eða af öðrum nauðsynlegum ástæðum, um að gæta að sér í hvívetna, huga að grímunotkun, tveggja metra fjarlægð, handþvotti og sprittnotkun. Hvatt er til þess að viðkomandi gefi sig fram við vettvangsstjórn í húsakynnum björgunarsveitarinnar Ísólfs að Hafnargötu 17 og fái leiðbeiningar og mögulega fylgd um svæðið tengist koma og vera viðkomandi aurskriðunum sem féllu á þriðjudag.

Gerum þetta saman sem fyrr.