8 Apríl 2008 12:00

Klukkan 11:22 í morgun barst tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Eyrarbakkavegi skammt neðan við Selfoss.  Lögreglu- sjúkra- og björgunarlið var sent á vettvang.  Áreksturinn varð með þeim hætti að jeppling var ekið af Kaldaðarnesvegi inn á Eyrarbakkaveg í veg fyrir vörubifreið sem ekið var til suðurs.  Ökumaður jepplingsins var úrskurðaður látinn á vettvangi eftir að lífgunartilraunir báru ekki árangur.  Þyrla var ræst út en afturkölluð.  Ökumaður vörubifreiðarinnar slasaðist ekki en hlaut viðeigandi aðhlynningu.  Ökumennirnir voru einir í ökutækjum sínum.  Eyrarbakkavegi var lokað eftir slysið á meðan vettvangsrannsókn fór fram og hreinsun.  Bæði ökutækin voru mikið skemmd og óökufær eftir.  Rannsókn fer fram á slysinu og aðdraganda þess.  Fulltrúi Rannsóknarnefndar umferðarslysa kom á vettvang til rannsóknar. Lögreglan lýsir eftir vitnum að áreksturinn.  Sími lögreglu er 480 1010.  Að svo stöddu er ekki hægt að greina frá nafni hins látna.