25 September 2009 12:00

Banaslys varð um kl. 11:00 í morgun á Hlíðarvegi í Jökulsárhlíð skammt norðan við bæinn Sleðbrjót.  Jeppabifreið á norður leið valt á veginum, tveir menn voru í bifreiðinni og lést annar þeirra en hinn var fluttur slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.  Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar á Eskifirði í náinni samvinnu við lögregluna á Egilsstöðum.

Ekki verða gefnar nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.