29 Júlí 2013 12:00

Rúmlega sextugur karlmaður frá Taiwan,  ferðamaður á Íslandi, lést þegar hann missti stjórn á vélsleða sem hann ók á Langjökli um hádegisbil í dag.   Slysið var tilkynnt lögreglu kl. 12:23 og var maðurinn úrskurðaður látinn af lækni í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún lenti á vettvangi um klukkutíma síðar.  Eiginkona mannsins var farþegi á sleðanum og slasaðist hún einnig en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg.  

Tildrög slyssins eru í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi og eru lögreglumenn þaðan ennþá á vettvangi.   Sleðinn verður fluttur í bíltæknirannsóknarsetur Lögreglunnar á Selfossi til rannsóknar.   Frekari upplýsingar verður ekki hægt að gefa í dag.