6 Ágúst 2007 12:00

Rétt uppúr kl. sjö í morgun varð banaslys á Laugarvatnsvegi á móts við bæinn Þóroddsstaði.  Karlmaður á þrítugsaldri lést er hann missti stjórn á fólksbifreið, sem hann ók, í beygju sem er á veginum.  Af ummerkjum á vettvangi að dæma hefur bifreiðin farið nokkrar veltur og ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinni, kastast út úr henni.  Lögreglumenn komu að rétt eftir að slysið átti sér stað en maðurinn var þá ekki með meðvitund og lífgunartilraunir báru ekki árangur.  Lögreglumenn á leið að Selfossi höfðu mætt bifreiðinni á Biskupstungnabraut á milli Seyðishóla og Minni Borgar og hugðust hafa afskipti af ökumanni.  Þeir gáfu honum merki um að stöðva með því að kveikja blá forgangsljós.  Þegar lögreglumennirnir voru að snúa við sáu þeir að hraði bifreiðarinnar sem þeir ætluðu að stöðva var aukinn.  Lögreglumennirnir fylgdu á eftir en misstu sjónar af bifreiðinni rétt ofan við verslunina Minni Borg.  Þá voru forgangsljós slökkt en lögreglumenn héldu áfram ferð sinni til að svipast um eftir bifreiðinni.  Þeir töldu sig síðan hafa séð bifreiðina við Svínavatn með stefnu upp Laugavatnsveg.  Það sem lögreglumennirnir sáu næst var ryk- og gufumökkur á veginum á móts við Þóroddsstaði og þegar þeir komu að staðnum sáu þeir hvað gerst hafði.  Ekki verður að svo komnu hægt að upplýsa frekar um þetta slys þar sem rannsókn er í gangi og óljóst hvenær henni lýkur.