2 Nóvember 2023 14:53

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut í morgun en slysið varð skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ.

Tilkynning um slysið barst viðbragðsaðilum kl. 08.16 og fóru viðbragðsaðilar strax á vettvang.

Lögreglan á Suðurnesjum og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.