4 Maí 2008 12:00

Ökumaður bifreiðar sem ekið var austur Suðurlandsveg í Kömbum lést þegar bifreið hans fór út af veginum og niður fyrir Hamarinn ofan Hveragerðis.  Maðurinn sem var á sjötugs aldri var einn í bílnum, virðist ekki hafa verið í öryggisbelti,  og kastaðist út úr honum.  Lífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur.   Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Selfossi sem biður hugsanleg vitni að hafa samband í síma 480 1010