12 Janúar 2024 13:39

Laust fyrir kl 10 í morgun varð alvarlegt umferðarslys á Þjóðvegi 1 skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli. Tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman, en mikil ísing var á vettvangi.


Tveir aðilar, erlendir ferðamenn voru úrskurðaðir látnir á vettvangi.

Alls voru átta aðilar í bílunum tveimur. Sex aðilar voru fluttir minna slasaðir til aðhlynningar á Landspítalann í Fossvogi með þyrlum Landhelgisgæslunnar.


Fjölmennt lið björgunarfólks frá sjúkraflutningum, slökkviliðum, björgunarsveitum og lögreglu fór á vettvang ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar.


Vinna á vettvangi er langt komin, og rannsókn málsins er á frumstigi og í höndum lögreglunnar á Suðurlandi. Þjóðvegi 1 hefur verið lokað á meðan aðgerðir standa yfir, en ekið er um hjáleið við Skaftafell.