11 Maí 2011 12:00

Laust fyrir kl. 21:00 í gærkvöldi var tilkynnt um alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum um Kambanes á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur.  Þarna hafði fólksbifreið verið ekið út af veginum, og farið nokkrar veltur.  Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr henni og lést á vettvangi skömmu einna.  Hann var á fimmtugsaldri.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði fer með rannsókn málsins í samvinnu við rannsóknarnefnd umferðarslysa.

Engar frekari upplýsingar verða gefnar að svo stöddu