14 Desember 2023 09:34

Alvarlegt umferðarslys var tilkynnt lögreglu miðvikudaginn 13. desember á Vesturlandsvegi móts við Skipanes.  Þar hafði harður árekstur orðið milli tveggja bifreiða sem þrír aðilar voru í.  Í öðrum bílnum var ökumaður einn á ferð en í hinni bifreiðinni voru tveir aðilar.  Ökumaðurinn sem var einn á ferð lést.  Ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru flutt til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar.