17 Janúar 2024 12:17

Alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi var tilkynnt 112 neyðarlínu þann 16. janúar klukkan 09:48.  Slysið átti sér stað á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótunum við Hvalfjarðarveg.  Þar hafði fólksbifreið á suðurleið rekist utan í vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt og síðan á aðra vöruflutningabifreið sem kom þar á eftir.  Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést við áreskturinn og farþegi hans slasaðist en ökumenn vöruflutningabifreiðanna voru óslasaðir en voru fluttir til skoðunnar á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem þeir síðan fengu áfallahjálp.  Lögreglan á Vesturlandi áasamt sjúkra- og slökkviliði fóru á vettvang og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem flutti slasaðan farþega til Reykjavíkur. Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa komu á vettvang en rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið.