24 Október 2015 22:16

Banaslys varð í dag þegar þriggja ára barn varð undir jeppabifreið á bifreiðastæði við sveitabæ í Biskupstungum um kl. 17:00 í dag. Lögregla, sjúkralið og undanfarahópur björgunarsveitarinnar á Flúðum voru kölluð á vettvang auk þyrlu frá Landhelgisgæslu Íslands.  Barnið var flutt með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík þar sem það var úrskurðað látið.   Ekki er unnt að greina nánar frá tildrögum slyssins að svo stöddu.  Rannsókn málsins er í höndum rannsóknardeildar Lögreglunnar á Suðurlandi, Tæknideildar Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins og Rannsóknarnefndar samgönguslysa