15 Ágúst 2007 12:00

Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi á Þorlákshafnarvegi við Grímslæk.

Maðurinn sem lést á Þorlákshafnarvegi mánudaginn 13. ágúst s.l. hét Jóhannes Örn Guðmundsson og var til heimilis að Setbergi 12, Þorlákshöfn.  Jóhannes var 41 árs og lætur eftir sig tvö börn, 20 ára og 5 ára.