18 Febrúar 2016 09:26

Maður á níræðisaldri lést er bíll hans fór í höfnina í Ólafsvík síðdegis í gær.  Maðurinn, sem var einn í bílnum, kom akandi niður á bryggjuna og virðist síðan hafa misst stjórn á honum, með þeim afleiðingum að bíllinn fór yfir bryggjukantinn og hafnaði á hvolfi í höfninni.  Lífgunartilraunir hófust strax er búið var að ná bílnum upp úr höfninni en þær báru ekki árangur.  Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi.