12 Október 2011 12:00

Banaslys varð á níunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell.  Vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðri átt skullu saman. 

Ökumaður fólksbifreiðarinnar, stúlka á átjánda ári lést.  Farþegi í fólksbifreiðinni einnig ung stúlka á átjánda ári, slasaðist og var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. 

Að svo stöddu er ekki hægt að upplýsa um nafn hinnar látnu.

Hálka er á vettvangi.  Lögreglan hefur nú að mestu lokið við vettvangsvinnu en enn eru tafir á umferð.