20 Ágúst 2008 12:00

Lögregla og sjúkralið frá Selfossi og Reykjavík voru kölluð að Hellisheiðarvirkjun upp úr kl. 19:00 í kvöld vegna alvarlegs vinnuslyss.   Lögreglumenn eru ennþá við vinnu á vettvangi en tveir erlendir starfsmenn verktakafyrirtækis létust í slysinu. 

Ekki er hægt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu en rannsókn er í höndum lögreglunnar á Selfossi og vinnueftirlits.  Gerðar hafa verið ráðstafanir til að aðrir starfsmenn sem á svæðinu voru fái viðeigand áfallahjálp.