6 Júní 2003 12:00

Föstudagur 6. júní 2003

Fimmtudaginn 5. júní Kl. 12:48 var tilkynnt um að maður vopnaður hnífi , klæddur bláum vinnusamfestingi, með græna lambhúshettu á höfði, hafi komið inn í Landsbankann í Grindavík.  Maðurinn stökk yfir afgreiðsluborð og ógnaði þar gjaldkera  með hnífi sem forðaði sér í var út úr bankanum ásamt öðrum starfsmanni og tilkynnti þar um ránið til lögreglu.  Maðurinn fór í gjaldkerakassa og hafði þar með sér peninga sem hann bar út í plastpoka.  Ekki verður uppgefið hve mikla fjármuni maðurinn hafði með sér.  Maðurinn sást síðan hlaupa til austurs frá bankanum og hvarf sjónum starfsmanna.  

Lögreglan lokaði á skömmum tíma öllum undankomuleiðum frá Grindavík og skömmu síðar eða kl. 13:12 stöðvaði lögreglan fólksbifreið á Reykjanesi á veginum til Hafna og handtók þar 19 ára gamlan mann sem gat passað við lýsingu á brotamanninum. Hann var þó ekki klæddur þeim fatnaði sem ránsmaðurinn hafði verið í hann mun hafa klætt sig úr samfestingnum og  ekkert þýfi fannst í bílnum.   Góðar myndir fengust úr eftirlitsmyndavélum í Landsbankanum og hjálpuðu þær til við rannsókn málsins.

Hóf þá lögreglan umfangsmikla leit að þýfinu með aðstoð leitarhunda og björgunarsveitamanna sem kallaðir voru til aðstoðar.  Sporhundur rakti slóð ræningjans frá bankanum að bifreiðaplani skammt frá þar sem ætla má að hann hafi farið upp í bifreið. Þýfið fannst síðan í svartri tösku í vegkantinum nærri Reykjanesvita, en brotamaðurinn mun hafa hent töskunni frá sér út úr bílnum þegar hann sá til aðgerða lögreglunnar.   Við yfirheyrslur hjá lögrelgu hefur sá handtekni gengist við ráninu og vísaði á stað þar sem  hann hafði hent frá sér samfestingnum, lambhúshettunni,skónum og hnífnum sem var  eldhúshnífnur sem var með ca. 20 cm. löngu blaði.

Maðurinn var færður fyrir Héraðsdóm Reykjaness þar sem hann gekkst við brotinu og að beiðni lögreglu var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. júní kl. 15:00.