23 Febrúar 2009 12:00

Nýtt Umferðarráð hefur verið skipað af samgönguráðherra, Kristjáni L. Möller.  Umferðarráð kom saman til síns fyrsta fundar á fimmtudag og sendi frá sér í kjölfarið eftirfarandi ályktun:

Nú þegar hafa þrír einstaklingar látist það sem af er þessu ári í umferðarslysum. Það er óásættanlegt. Þrátt fyrir að fjöldi látinna í umferð hafi verið með lægsta móti á síðasta ári er full ástæða til að halda vöku sinni og slá hvergi af í baráttunni gegn umferðarslysum. Markmið okkar er að enginn látist í umferðarslysum og alvarlegum slysum í umferð fækki til muna. Bent er á í þessu sambandi að ekkert banaslys varð á sjó á síðasta ári hér við land, sem er afrakstur áralangrar baráttu fyrir öryggi sjómanna. Sama þróun hefur átt sér stað í flugi, en enginn hefur látið lífið í íslenskt skráðu loftfari á síðastliðnum átta árum. Það gefur okkur von um að slíkum árangri sé hægt að ná í umferðinni. Umferðarráð hvetur eindregið til þess að landsmenn allir og stjórnvöld stuðli að því að slík framtíðarsýn sé möguleg.