11 Október 2012 12:00

Útveggur íbúðarhúsnæðis í Reykjanesbæ brotnaði í vikunni þegar skófla á stórri beltagröfu rakst í hann. Verið var að rífa niður bílskúr í næsta nágrenni húsnæðisins þegar óhappið varð. Þegar lögreglan á Suðurnesjum kom á vettvang sást að búið var að dælda bárujárn á einni hlið hússins. Þegar inn var komið reyndist veggurinn, sem var hlaðinn, hafa brotnað. Sá sem var að vinna á beltagröfunni taldi að hann hefði farið of nærri veggnum með ofangreindum afleiðingum.

Gaf ekki stefnuljós og lenti í árekstri

Árekstur varð á Hringbraut í Keflavík þegar bifreið var beygt af götunni og inn á bifreiðastæði vinstra megin hennar, án þess að ökumaður gæfi stefnuljós. Hann ók í fyrstu inn á bifreiðastæði hægra megin götunnar, en ákvað svo að nota bílastæði hinum megin. Ökumaður annarrar bifreiðar sem á eftir kom ætlaði fram úr en þá skall fyrrnefnda bifreiðin inn í hliðina á bíl hans. Annar árekstur varð í Keflavík þegar bifreið var ekið aftan á aðra, sem hafði verið stöðvuð við merkta gagnbraut. Engan sakaði og tjón á bílunum var lítið.