11 Júlí 2013 12:00

Nokkrir lögreglumenn fóru í sjósund frá Bessastöðum til Reykjavíkur 9. júlí.  Þetta voru lögreglumenn frá ríkislögreglustjóra, lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu og lögreglunni á Suðurnesjum.  Sérsveitarmenn á bát frá ríkislögreglustjóra fylgdu sundköppunum og sáu til þess að fyllsta öryggis væri gætt.  Sundið gekk vel og það tók um 50 mínútur í köldum sjónum að fara þessa leið sem lá frá fjörunni við Bessastaði til Nauthólsvíkur þar sem heitur pottur beið sundkappanna