2 Júlí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi um hádegisbil (kl. 12) föstudaginn 29. júní. Í hringtorgi á móts við Toyota-umboðið var svörtum Range Rover ekið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á hjólinu, ók á vegkant og féll síðan af því. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ökumaðurinn á Range Rovernum er sérstaklega hvattur til að gefa sig fram en hann ók rakleiðis af vettvangi.