13 Nóvember 2012 12:00

Mikil mildi þykir, að ekki skyldi verða slys á fólki, þegar jepplingur með bílstjóra og þrjá farþega valt við Kúagerði á Reykjanesbraut í gærkvöld. Fólkið var að koma úr Bláa lóninu þegar óhappið varð. Afturendi bílsins, sem ekið var á hægri akrein, rann til og við það missti ökumaður stjórn á honum. Bíllinn fór yfir vinstri akrein og þaðan yfir hvilftina og upp á veg hinum megin, í veg fyrir umferð sem kom úr gagnstæðri átt. Ökumaðurinn sá bifreið koma á móti sér og reyndi að beygja aftur til baka með þeim afleiðingum að bifreiðin valt á hliðina. Ökumaður bifreiðarinnar sem kom úr gagnstæðri átt, náði að hægja ferðina og beygja út á vegöxl til að koma í veg fyrir árekstur.

Nokkur atvik af svipuðu tagi hafa orðið á þessum vegarkafla á undanförnum árum, en á honum eru engin vegrið milli akbrauta.

Miklu magni verkfæra stolið

Miklu magni verkfæra var stolið úr geymslu Golfklúbbs Vatnsleysustrandar fyrir fáeinum dögum. Sá eða þeir sem þar voru að verki brutu upp hurð geymslunnar og komust inn með þeim hætti. Ekki komu þeir þó alveg öllu því út sem þeir höfðu ætlað sér því  ýmsir smáhlutir, sem þeir virtust hafa misst, lágu á gólfinu og rörtöng fyrir utan húsið. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.