24 Apríl 2007 12:00

Í morgun handtók lögreglan á Selfossi mann á fertugsaldri eftir eftirför sem hófst á Krísuvíkurvegi í Selvogi.  Ástæða eftirfararinnar var sú að lögregla var að svipast um eftir sendiferðabifreið sem hafði verið stolið í Keflavík í nótt.  Í Selvogi vildi svo til að lögreglumenn mættu bifreiðinni og gáfu ökumanni hennar stöðvunarmerki sem hann sinnti ekki.  Hófst þar með eftirför þar sem ökumaður sendibifreiðarinnar ók hratt og ógætilega þar á meðal í gengum bæjarhlaðið á Hrauni í Ölfusi.  Eftirförinni lauk þar sem ökumaður ók inn að sandgryfjum vestan við Óseyrarbrú  þar sem hann var króaður af.  Hann brá á það ráð að hlaupa frá bifreiðinni en átti þung spor í lausum sandinum og með fráa lögreglumenn á hælum sér gafst hann upp.  Félagi mannsins var á annari bifreið og kom skömmu síðar í lögreglustöðina og var handtekinn þar.  Í bifreið hans fannst biblía og sálmabók merkt Krísuvíkurkirkju.  Sá maður hafði komið við í Krísuvíkurkirkju og tekið bækurnar þar.  Í sendibifreiðin var full af glugga- og hurðakörmum og leikur grunum á að félagarnir hafi stolið því í Keflavík.  Það mál er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum. 

Ökumaður sendibifreiðarinnar var sviptur ökurétti til bráðabirgða vegna háskaaksturs og meintra fíkniefnaáhrifa við aksturinn.