7 Apríl 2003 12:00

Mánudaginn 7. apríl 2003 kl. 08:05 var tilkynnt um bílveltu á Garðvegi skammt norðan við Golfskálann í Leiru. Þarna hafði ökumaður, sem var einn í bílnum, á leið norður Garðveg misst stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að bifreiðin fór útaf veginum. Bifreiðin valt og endastakkst en endaði á hjólunum. Ökumaðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður og fékk að fara til síns heima að lokinni læknisskoðun á Sjúkarhúsi  Suðurnesja.   Krapi var á veginum þegar slysið varð, en ekki teljandi hálka.