8 Maí 2015 12:25

Ungur ökumaður velti bifreið sinni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær. Pilturinn ók Vatnsleysustrandarveg þegar hann missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún valt einn hring og endaði á hjólunum. Með ökumanninum  í bílnum var annar piltur á svipuðu reki. Þeir sluppu ómeiddir en voru engu að síður fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í öryggisskyni. Lögregla tilkynnti foreldrum þeirra um atvikið og dráttarbifreið fjarlægði bifreiðina af vettvangi.