2 Október 2015 12:08

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni tvo ökumenn sem grunaðir voru um að vera ölvaðir undir stýri. Í  öðru tilvikinu var ökumaðurinn stöðvaður af borgara í Grindavík og handtók lögregla manninn skömmu síðar.  Báðir ökumennirnir voru færðir á lögreglustöð og sleppt að lokinni skýrslutöku.