22 Mars 2019 09:23

Málþing um börn og samskipti á internetinu verður haldið í Skriðu, Háskóla Íslands að Stakkahlíð 2, föstudaginn 22. mars milli 14 og 16. Lykilfyrirlesari er Fred Langford, forseti INHOPE, alþjóðlegra regnhlífasamtaka ábendingalína og aðstoðarframkvæmdastjóri Internet Watch Foundation. Í erindi sínu mun Langford fjalla um alþjóðlegt samstarf til að útrýma kynferðislegu ofbeldi gegn börnum á Netinu og um helstu áskoranir sem foreldrar, fagaðilar og opinberir stefnumótunaraðilar standa frammi fyrir til að tryggja öryggi barna á Netinu.

Málþingið er haldið í samstarfi nefndar stjórnvalda um mótun stefnu í forvörnum og fræðslu með það að markmiði að útrýma kynferðislegu ofbeldi og áreitni, Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Lögreglunnar á Suðurnesjum, ábendingalínu Barnaheilla og SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni, sem er samstarfsverkefni Heimilis og skóla, Rauða krossins, Ríkislögreglustjóra og Barnaheilla.

Erindi Freds Langford verður á ensku en málþingið fer að öðru leyti fram á íslensku.

Dagskrá
14:00 Setning
14:05 Internetið og mótun stefnu í forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi. Halla Gunnarsdóttir, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum og formaður nefndar um mótun stefnu í forvörnum og fræðslu með það að markmiði að útrýma kynferðislegu ofbeldi og áreitni
14:15 „Online safety and future technology”
Fred Langford, forseti INHOPE, alþjóðlegra regnhlífasamtaka ábendingalína og aðstoðarframkvæmdastjóri Internet Watch Foundation
15:00 Pallborðsumræður: „Meðvitund um öryggi barna á internetinu“
Þátttakendur:
Sólveig Jakobsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, verkefnastýra Sjúkást hjá Stígamótum
Eiríkur Guðni Ásgeirsson, rannsóknarlögreglumaður, Lögreglan á Suðurnesjum
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri Lögreglunnar á Suðurnesjum
Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
Andrea Marel, deildarstjóri unglingastarfs, Tjörnin frístundamiðstöð
Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri ábendingalínu Barnaheilla
Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur í Barnahúsi
Embla Rún Pétursdóttir og Birna Guðlaugsdóttir, Ungmennaráði SAFT
Anna Kristín Newton, sálfræðingur
15:40 Kynning á nýrri tilkynningasíðu Barnaheilla og SAFT
Þóra Jónsdóttir og Aldís Yngavdóttir
15:50 Trigger warning
Sólborg Guðbrandsdóttir, athafnakona
16:00 Málþingi slitið

Málþingsstjóri: Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar