22 Mars 2023 14:06

Hrafn Sveinbjarnarson GK-255 kom snemma í morgun til hafnar í Grindavík með brak úr flugvél og brot úr höfuðkúpu, sem komu í veiðarfæri skipsins þann 8. mars síðastliðinn.  Skipið var þá að veiðum vestan við Reykjanes. Á svipuðum slóðum fórst lítil tveggja hreyfla ferjuflugvél þann 11. febrúar 2008 og með henni flugmaður, sem var einn um borð.

Eftir skoðun rannsóknarnefndar samgönguslysa á munum þeim sem komið var með að landi í morgun, er talið að staðfest sé að um sé að ræða flugvélarparta úr flugvélinni sem fórst vestan við Reykjanes fyrir um 15 árum. Sá rannsóknarhluti málsins sem snýr að líkamsleifum er í höndum kennslanefndar ríkislögreglustjóra.