29 Mars 2016 13:28

Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórinn á Suðurnesjum, hafa ákveðið að draga úr vopnuðum viðbúnaði á Keflavíkurflugvelli sem komið var á vegna hryðjuverkanna í Brussel. Þessi ákvörðun byggist á framvindu mála í Evrópu, en kann að taka breytingum með skömmum fyrirvara.

Ríkislögreglustjóri

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum