26 Ágúst 2010 12:00

Ríkislögreglustjóri hefur gefið út nýtt skipurit fyrir efnahagsbrotadeild embættisins sem gerir ráð fyrir að tveir saksóknarar starfi á rannsóknar- og ákærusviði deildarinnar. Hefur Sigríði Elsu Kjartansdóttur, sem skipuð er saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, verið falið að gegna starfi saksóknara við efnahagsbrotadeild. Þá hefja fleiri nýir starfsmenn störf við deildina á næstunni.

Á síðustu misserum hafa tíu lögreglumenn hjá ríkislögreglustjóra horfið til starfa hjá sérstökum saksóknara, þar af fimm tímabundið. Í þessum hópi eru átta lögreglufulltrúar sem hafa áralanga reynslu af störfum við efnahagsbrotarannsóknir. Til að mæta þessu hafa starfsmenn annarra deilda hjá ríkislögreglustjóra verið færðir í efnahagsbrotadeild auk þess sem lausar stöður lögreglumanna og sérfræðinga með reynslu úr viðskiptalífinu hafa verið auglýstar lausar til umsóknar. Verið er að ráða í þær stöður.

Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari

Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari