19 Júní 2008 12:00

Um kl. 04:00 s.l nótt var tilkynnt til lögreglu um að eldur væri laus í kaffi og gistiheimilinu Hjá Marlín að Vallargerði 9 á Reyðarfirði.  Slökkvilið Fjarðabyggðar væri á leið á staðinn. Þrír gestir voru í húsinu og vöknuðu þeir við brunaviðvörunarkerfi sem fór í gang, og komust af sjálfsdáðum út.  Slökkvilið Fjarðabyggðar lauk slökkvistörfum laust eftir kl. 05:00.  Engin slys urðu á fólki.

Ljóst er að miklar skemmdir eru á húsinu af völdum elds, hita, reyks og vatns.  Rannsókn lögreglu stendur yfir.