8 Janúar 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna að bruna á Stýrimannastíg í Reykjavík föstudaginn 20. desember sl., en þá eyðilögðust tvær bifreiðar í eldsvoða. Tilkynning um brunann barst lögreglu klukkan 21.05 þetta sama kvöld, en um var að ræða rauðan Renault Clio RN og svartan Hyundai I10. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar.