9 September 2015 09:55

Á þessum árstíma eru bændur að reka fé af fjalli og þegar komið er í byggð má búast við umferðartöfum á vegum.  Þannig auglýsir Skeiða- og Gnúpverjahreppur á heimasíðu sinni að tafir verði á umferð á þjóðvegi nr. 32, Þjórsárdalsvegi, fimmtudaginn 10. september, föstudaginn 11. september og á þjóðvegi nr. 30 Skeiða- og Hrunamannavegi laugardaginn 12. september vegna fjárrekstra. – Hjáleiðir færar. Nánari upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins http:// www. skeidgnup.is

Sama á við um fjárrekstur af Hrunamannaafrétti en safnið kemur fram á morgun fimmtudag 10. september  og má þá búast við umferðartöfum á Skeiða og Hrunamannavegi ofan Flúða (30)  frá Tungufellsvegi að Kirkjuskarði. Féð er  síðan rekið um Kirkjuskarð eftir Hrunavegi (344) að Hrunaréttum þar sem réttað verður á föstudag 11. september kl. 10:00.

Á heimasíðunni

http://www.south.is/is/hvad-a-ad-gera/vidburdir/rettir-a-sudurlandi-2015

má sjá lista yfir réttardaga á Suðurlandi í haust.