Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögrelgustjóra og þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir
12 Febrúar 2021 13:36

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis: 

  • Almannavarnastig fært úr neyðarstigi í hættustig vegna COVID-19

Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnalækni, hefur ákveðið að færa almannavarnastig úr neyðarstigi niður á hættustig vegna COVID-19. Neyðarstigi var lýst yfir 4. október 2020 þegar þriðja bylgja faraldursins hófst og smitum tók að fjölga verulega.

Þessi breyting hefur ekki áhrif á þær sóttvarnaráðstafanir, skv. reglugerðum heilbrigðisráðherra, sem í gildi eru. Aflétting neyðarstigs hefur því ekki í för með sér breytingar gagnvart almenningi.

Ferli sem fer í gang vegna neyðarstigs er lokið, en sóttvarnalæknir og stýrihópur um verkefni sem snýr að COVID-19, fylgjast eftir sem áður með þróun faraldursins og taka ákvarðanir miðað við framvindu hans.

Frá því að neyðarstigi var fyrst lýst yfir, 6. mars 2020, hafa 6.033 smit hafa verið staðfest, yfir 46.005 farið í sóttkví og 488.851 sýni verið tekin innanlands og á landamærum. Tuttugu og níu einstaklingar hafa látist vegna COVID-19.  Hópsmit komu upp á nokkrum stöðum frá því neyðarstig var sett á sem kallaði á hertar sóttvarnareglur og frekari takmörkun á samkomum.

Frekari upplýsingar um þróun faraldursins og bólusetningar sem er hafin má finna á www.covid.is – Þar má einnig finna upplýsingar um þær sóttvarnaaðgerðir sem eru í gildi sem og leiðbeiningar.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögrelgustjóra og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir