3 Júlí 2007 12:00

Ríkislögreglustjóri hafði samvinnu við bandarísku alríkislögregluna FBI um námskeiðahaldið.  Leiðbeinendur á námskeiðinu komu frá FBI og var námskeiðið haldið í Lögregluskóla ríkisins.   Auk íslenskra lögreglumanna tóku að þessu sinni þátt samningamenn frá lögreglunni í Noregi, Danmörku og Svíþjóð.

Hérlendis er það sérsveit ríkislögreglustjóra sem starfrækir samningahóp lögreglu og hefur frá upphafi verið höfð samvinna við FBI um þjálfun lögreglumanna á þessu sviði.