24 Ágúst 2012 12:00

Á fundi ríkislögreglustjóra Norðurlandanna í Haikko í  Finnlandi sl. miðvikudag var undirritaður samningur um norræna lögreglusamvinnu.  Samningurinn tekur til margvíslegrar lögreglusamvinnu svo sem varðandi gagnkvæma rannsóknaraðstoð, eftirlýsingar í öðru norrænu landi, gagnkvæm skipti á upplýsingum, sameiginlega rannsóknarhópa vegna einstakra mála og samræmingu á starfi í þriðja landi utan Norðurlandanna. Samningurinn tekur einnig til láns á búnaði milli landanna, samstarfi DVI – kennslanefndasamstarfs, þátttöku í mati í meiri háttar aðgerðum og atburðum o.fl. 

Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri undirritaði samninginn fyrir hönd Íslands.

Sjá má samninginn hér á íslensku og sænsku.