1 September 2008 12:00

Um helgina var farin eftirlitsferð í TF EIR þyrlu Landshelgisgæslunnar. Var farið vítt og breytt yfir umdæmið. Eftirlitinu var fyrst og fremst beint að gæsa- og       hreindýraveiðimönnum sem og hugsanlegum utanvega akstri. Hér var á ferðinni samstarfsverkefni embættis lögreglustjórans á Seyðisfirði og Landhelgisgæslunnar með aðkomu ríkislögreglustjóraembættisins. Allt reyndist í góðu lagi, nokkuð var um hálendis umferð í umdæminu og ekki varð annað séð en veiði- og ökumenn færu að reglum í hvívetna. Veiðimenn mega alltaf búast við eftirliti úr lofti. Eftirlitið var framkvæmt að höfðu samráði við starfsmann Hreindýraráðs.