7 Mars 2007 12:00

Lögreglan á Vestfjörðum mun á næstu mánuðum leggja áherslu á eftirlit með þungaflutningum í umdæminu.  Þarna er á ferðinni tilraunaverkefni í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra sem nefnist “verkefnamiðuð löggæsla”.  Í tengslum við þetta munu lögreglumenn  vera í samstarfi við Umferðareftirlitsdeild Vegagerðarinnar og eins kom að þessu starfsmenn Vegagerðarinnar á Ísafirði. 

Með þessu framtaki vilja löggæsluaðilar á Vestfjörðum leggja sitt að mörkum við að auka umferðaröryggi á vegum þar sem þungaflutningar eru mjög miklir.  Þá gefur þetta verkefni af sér upplýsingar og gögn sem nýta má til að greina vanda sem snýr að þessum flutningum, hvort sem er varðandi vegina sjálfa, ökutækin eða ökumenn þeirra.