2 Júlí 2011 12:00

Lögreglan á Selfossi og Þyrludeild Landhelgisgæslunnar sinntu umferðareftirliti úr þyrlu í gærkvöldi.   Farið var um Suður-, Vestur- og Norðurland og umferðinni fylgt eftir.   Almennt var ökuhraði hófstilltur og ekki tilefni til afskipta.  Einn ökumaður var þó kærður fyrir að aka á 141 km/klst hraða á Norðurlandsvegi  skammt frá Hvammstanga.   Hann lét sér ekki segjast eftir þau afskipti og var stöðvaður skömmu síðar á 120 km/klst hraða af lögreglunni á Blönduósi.   Fyrir fyrra brotið má hann búast við 130 þúsund króna sekt og þremur punktum í ökuferilsskrá en  seinna brotið varðar 50 þúsund króna sekt og einum punkti.   Töluverður fjöldi ökumanna var stöðvaður og látinn blása í áfengismæli en allir reyndust alsgáðir.  

Fleiri eftirlitsferðir eru ráðgerðar með þyrlu LHG um helgina en afar hentugt hefur reynst að nýta fastbundið æfingaflug flugmanna til eftirlits sem þessa.