12 Nóvember 2003 12:00

Nú hefur verið bætt við síðu á lögregluvefinn, þar sem framvegis verða birtar upplýsingar um ökutæki sem lögreglan lýsir eftir, bæði stolin og horfin ökutæki.   Þessi listi verður uppfærður þrisvar sinnum á sólarhring til að tryggja að alltaf séu birtar nýjar upplýsingar.

Lögreglan óskar eftir samstarfi við fólkið í landinu við að hafa uppi á eftirlýstum ökutækjum og vonast til að þessi nýjung geti orðið til þess að flýta fyrir að hafa uppi á þeim.

Síðuna má finna á lögregluvefnum:  www.logreglan.is   undir liðnum Eftirlýst, stolin eða horfin ökutæki