26 Maí 2011 12:00

Lionsklúbburinn Eir hefur fært fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 400 þúsund krónur að gjöf. Peningunum verður varið til kaupa á tækjum og búnaði fyrir deildina. Lionsklúbburinn Eir hefur um langt árabil sýnt lögreglunni einstaka velvild og hefur lengi styrkt baráttu hennar gegn fíkniefnum með rausnarlegum hætti. Myndirnar hér að neðan voru teknar þegar hópur kvenna frá Lionsklúbbnum Eir kom í heimsókn á lögreglustöðina við Hverfisgötu og afhenti gjöfina.

Hanna Gísladóttir, Þórhildur Guðmundsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir, Kristín Thorarensen, Guðríður Thorarensen og Margrét Nielsen.

Hanna afhenti Herði aðstoðarlögreglustjóra veglegan styrk í baráttunni gegn fíkniefnum.