8 Nóvember 2013 12:00

Lionsklúbburinn Eir hefur fært fíkniefnadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 500 þúsund krónur að gjöf. Lionsklúbburinn Eir hefur áður sýnt lögreglunni mikla velvild og hefur á undanförnum árum styrkt baráttu hennar gegn fíkniefnum með mjög myndarlegum hætti. Eins og áður koma peningarnir sér vel, en þeim verður varið til kaupa á tækjum og búnaði fyrir deildina. Á myndinni eru Lionskonurnar Steinunn Friðriksdóttir, Eyrún Kjartansdóttir og Hanna Gísladóttir ásamt fulltrúum lögreglunnar, sem tóku við hinni höfðinglegu gjöf.