19 September 2007 12:00

Lionsklúbburinn Eir hefur fært fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 350 þúsund krónur að gjöf. Peningunum verður varið til kaupa á tækjum og búnaði fyrir deildina. Lionsklúbburinn Eir hefur áður sýnt lögreglunni mikla velvild og hefur á undanförnum árum styrkt baráttu hennar gegn fíkniefnum. Meðfylgjandi mynd var tekin á lögreglustöðinni við Hverfisgötu þegar föngulegur hópur kvenna frá Lionsklúbbnum Eir kom í heimsókn og afhenti gjöfina. Með þeim á myndinni eru nokkrir af yfirmönnum lögreglunnar.