17 Október 2012 12:00

Lögreglan á Vestfjörðum hefur haft til rannsóknar upptök eldsins sem kviknaði í gróðri í Laugardal í Ísafjarðardjúpi þann 3. ágúst sl.  Nokkrar ábendingar bárust lögreglunni um mannaferðir og þá sem taldir voru bera ábyrgð á brunanum.  Lögreglan hefur unnið úr þessum vísbendingum öllum.  Ekkert liggur fyrir um hver beri ábyrgð á því sem þarna gerðist.

Telji einhver sig búa yfir frekari upplýsingum sem geti varpað ljósi á málið er sá hinn sami hvattur til þess að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum, í síma 450 3730.