9 Desember 2005 12:00

Upplýst eldsupptök vegna eldsvoðans sem varð mánudaginn 5. desember sl. að Aðalstræti 25 á Ísafirði.

Lögreglan á Ísafirði, með aðstoð tveggja lögreglumanna úr Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík, hefur nú lokið rannsókn á eldsupptökum.  Niðurstaða hennar er að eldurinn kom upp í tauklæddum stól í stofu, út frá opnum eldi. Eins og áður hefur fram komið lést einn maður í eldsvoðanum.  Hann fannst í stofunni, skammt frá eldsupptakastaðnum.  Réttarkrufning hefur farið fram og kom í ljós að maðurinn hafði látist af völdum reyksins sem myndaðist við eldsvoðann.