6 Desember 2005 12:00

Eins og fram kom í fjölmiðlum í gær varð eldur laus í íbúð að Aðalstræti 25 á Ísafirði.  Fullorðinn karlmaður var í íbúðinni þegar eldurinn braust út og komu reykkafarar slökkviliðsins að honum látnum þar inni.  Hann átti heima í umræddri íbúð.

Eldsupptök eru enn ókunn.  Lögreglan á Ísafirði hefur vaktað brunavettvang síðan slökkvistarfi lauk í gærkveldi.  Aðstoð hefur verið fengin frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík við vettvangsrannsókn, sem hefst um hádegisbilið í dag.  Að henni munu standa rannsóknarlögreglumaður á Ísafirði og tveir rannsóknarlögreglumenn tæknideildar lögr. í Rvík, eins og áður sagði.

Lögreglan mun senda frá sér fréttatilkynningu þegar málsatvik skýrast betur.

Maðurinn sem lést í eldsvoðanum hét Magni Viðar Torfason.  Hann lætur eftir sig sambýliskonu og tvö börn, 11 og 13 ára.