10 Ágúst 2005 12:00

            Klukkan 17:42 í gær þriðjudag, var tilkynnt til lögreglunnar á Ísafirði um að eldur væri laus í dráttarvél sem væri inni í vélageymslu við bæinn Hóla í Dýrafirði.  Er slökkvilið Þingeyrar kom á vettvang logaði út um dyrnar á geymslunni og talsvert mikill eldur var inni í geymslunni.  Slökkvistarf gekk vel, tókst að koma í veg fyrir að tveir 20 kg.  gaskútar spryngju og að verja stóran olíutank sem var rétt innan við dyrnar.  Rennihurð sem annars lokar dyraopinu, var opin – hurðin var uppi.  Við hitan þá datt/hrundi hún niður, rétt í þann mund sem slökkvilið kom á staðinn.  Mildi var að enginn var þar undir.  Rétt áður höfðu tveir menn verið þar við að reyna að draga brennandi dráttarvélina út, en urðu frá að hverfa þar sem eldurinn magnaðist svo fljótt.

            Ótvírætt er að eldurinn kom upp í einni af dráttarvélunum sem í geymslunni voru og beinist rannsóknin að rafkerfi vélarinnar.

            Miklar skemmdir eru á þrem dráttarvélum, tveim heyvinuvélum, miklu af verkfærum og geymslunni sjálfri..