19 Október 2020 09:48
Um kl. 17:30 í gær, sunnudaginn 18. október, barst tilkynning um eld í íbúðarhúsi í uppsveitum Borgarfjarðar. Við komu slökkviliðs og lögreglu á vettvang var íbúðarhúsið alelda. 
 
Aðstæður til slökkvistarfs voru erfiðar en slökkvilið náði tökum á eldinum um þremur tímum eftir komu á vettvang. Húsið er gjörónýtt.
 
Slökkvistarfi lauk um kl. 23 í gærkvöldi en að því komu slökkvilið frá öllum starfsstöðvum slökkviliðs Borgarfjarðar auk þess sem aðstoð barst frá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
 
Ein manneskja var í húsinu þegar eldurinn kom upp og lést hún í brunanum.  Ekki er vitað um eldsupptök og er rannsókn á frumstigi.  Lögreglan á Vesturlandi, ásamt tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu, rannsakar eldsupptök.
 
Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo komnu máli.