9 Júní 2009 12:00

Lögregla ásamt slökkviliðinu á Akureyri og Grenivík fengu tilkynningu um eld í sumarbústað á Kljáströnd í Grýtubakkahreppi laust upp úr kl. 08:30 í morgun.  Er viðbragðsaðila bar  að var bústaðurinn alelda en tvennt var í bústaðnum þegar eldurinn kom upp, hjón á níræðis aldri.    Konan lést í eldsvoðanum en maðurinn var fluttur til aðhlynningar á Sjúkrahús Akureyrar.  Búið er að slökkva eldinn og eru eldsupptök ókunn en lögreglan á Akureyri vinnur að rannsókn málsins.  Ekki er unnt að birta nafn konunnar að svo stöddu.